< Sálmarnir 114 >

1 Í árdaga, þegar Ísraelsmenn flúðu Egyptaland, land hinnar framandi tungu, 2 varð Júda og Ísrael bústaður Guðs og ríki hans. 3 Hafið rauða sá þá koma og hopaði. Og áin Jórdan, hún stöðvaðist svo að þeir gátu gengið yfir. 4 Fjöllin hoppuðu eins og hrútar og hæðirnar sem lömb! 5 Hvað olli því, þú rauða haf, að þú hopaðir til beggja hliða? Og hvers vegna, áin Jórdan, stöðvaðist rennsli þitt? 6 Og þið fjöll, hvers vegna hoppið þið eins og hrútar og þið hæðir sem lömb? 7 Nötra þú jörð frammi fyrir augliti Drottins, Guðs Jakobs, 8 því að hann lét uppsprettu opnast á klettinum.

< Sálmarnir 114 >