< Sálmarnir 104 >

1 Ég lofa Drottin! Drottinn, þú Guð minn, þú ert undursamlegur! Þú ert íklæddur hátign og dýrð og umlukinn ljósi!
Bless the LORD, my soul. The LORD, my God, you are very great. You are clothed with honour and majesty.
2 Þú þandir út himininn eins og dúk og dreifðir um hann stjörnunum.
He covers himself with light as with a garment. He stretches out the heavens like a curtain.
3 Þú mótaðir þurrlendið og rýmdir fyrir hafinu. Þú gerðir ský að vagni þínum og ferð um á vængjum vindarins.
He lays the beams of his rooms in the waters. He makes the clouds his chariot. He walks on the wings of the wind.
4 Englarnir eru erindrekar þínir og eldslogar þjóna þér.
He makes his messengers winds, and his servants flames of fire.
5 Undirstöður heimsins eru traustar, þær eru þitt verk, og þess vegna haggast hann ekki.
He laid the foundations of the earth, that it should not be moved forever.
6 Þú lést vatnsflóð ganga yfir jörðina og hylja fjöllin.
You covered it with the deep as with a cloak. The waters stood above the mountains.
7 Og þegar þú bauðst, safnaðist vatnið saman í höfunum,
At your rebuke they fled. At the voice of your thunder they hurried away.
8 fjöllin risu og dalirnir urðu til.
The mountains rose, the valleys sank down, to the place which you had assigned to them.
9 Þú settir sjónum sín ákveðnu mörk svo að hann skyldi aldrei aftur flæða yfir þurrlendið.
You have set a boundary that they may not pass over, that they don’t turn again to cover the earth.
10 Þú settir lindir í dalina og lækir renna um fjöllin.
He sends springs into the valleys. They run amongst the mountains.
11 Þeir eru dýrunum til drykkjar og þar svalar villiasninn þorsta sínum.
They give drink to every animal of the field. The wild donkeys quench their thirst.
12 Þar gera fuglar sér hreiður og söngur þeirra ómar frá trjánum.
The birds of the sky nest by them. They sing amongst the branches.
13 Hann sendir regn yfir fjöllin svo að jörðin ber sinn ávöxt.
He waters the mountains from his rooms. The earth is filled with the fruit of your works.
14 Safaríkt grasið vex að boði hans og er búfénu til fæðu. En maðurinn yrkir jörðina, ræktar ávexti, grænmeti og korn,
He causes the grass to grow for the livestock, and plants for man to cultivate, that he may produce food out of the earth:
15 einnig vín sér til gleði, olíu sem gerir andlitið gljáandi og brauð sem gefur kraft.
wine that makes the heart of man glad, oil to make his face to shine, and bread that strengthens man’s heart.
16 Drottinn gróðursetti sedrustrén í Líbanon, há og tignarleg,
The LORD’s trees are well watered, the cedars of Lebanon, which he has planted,
17 og þar byggja fuglarnir sér hreiður, en storkurinn velur kýprustréð til bústaðar.
where the birds make their nests. The stork makes its home in the cypress trees.
18 Steingeiturnar kjósa hin háu fjöll, en stökkhérarnir finna sér stað í klettum.
The high mountains are for the wild goats. The rocks are a refuge for the rock badgers.
19 Tunglið settir þú til að afmarka mánuði, en sólina til að skína um daga.
He appointed the moon for seasons. The sun knows when to set.
20 Myrkur og nótt eru frá þér komin, þá fara skógardýrin á kreik.
You make darkness, and it is night, in which all the animals of the forest prowl.
21 Þá öskra ljónin eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.
The young lions roar after their prey, and seek their food from God.
22 Þegar sólin rís draga þau sig í hlé og leggjast í fylgsni sín,
The sun rises, and they steal away, and lie down in their dens.
23 en mennirnir ganga út til starfa og vinna allt til kvölds.
Man goes out to his work, to his labour until the evening.
24 Drottinn, hvílík fjölbreytni í öllu því sem þú hefur skapað! Allt á það upphaf sitt í vísdómi þínum! Jörðin er full af því sem þú hefur gert!
LORD, how many are your works! In wisdom, you have made them all. The earth is full of your riches.
25 Framundan mér teygir sig blikandi haf, iðandi af alls konar lífi!
There is the sea, great and wide, in which are innumerable living things, both small and large animals.
26 Og sjá! Þarna eru skipin! Og þarna hvalirnir! – þeir leika á alls oddi!
There the ships go, and leviathan, whom you formed to play there.
27 Allar skepnur vona á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.
These all wait for you, that you may give them their food in due season.
28 Þú mætir þörfum þeirra og þau mettast ríkulega af gæðum þínum.
You give to them; they gather. You open your hand; they are satisfied with good.
29 En snúir þú við þeim bakinu er úti um þau. Þegar þú ákveður, deyja þau og verða að mold,
You hide your face; they are troubled. You take away their breath; they die and return to the dust.
30 en þú sendir líka út anda þinn og vekur nýtt líf á jörðinni.
You send out your Spirit and they are created. You renew the face of the ground.
31 Lof sé Guði að eilífu! Drottinn gleðst yfir verkum sínum!
Let the LORD’s glory endure forever. Let the LORD rejoice in his works.
32 Þegar hann lítur á jörðina, skelfur hún og eldfjöllin gjósa við snertingu fingra hans.
He looks at the earth, and it trembles. He touches the mountains, and they smoke.
33 Ég vil lofsyngja Drottni svo lengi sem ég lifi, vegsama Guð á meðan ég er til!
I will sing to the LORD as long as I live. I will sing praise to my God while I have any being.
34 Ó, að ljóð þetta mætti gleðja hann, því að Drottinn er gleði mín og fögnuður.
Let my meditation be sweet to him. I will rejoice in the LORD.
35 Ó, að misgjörðarmenn hyrfu af jörðinni og að óguðlegir yrðu ekki framar til. En Drottin vil ég vegsama að eilífu! Hallelúja!
Let sinners be consumed out of the earth. Let the wicked be no more. Bless the LORD, my soul. Praise the LORD!

< Sálmarnir 104 >