+ Sálmarnir 1 >

1 Mikil er gæfa þess manns sem ekki fer að ráðum óguðlegra, ekki á félagsskap við syndara sem hæða Guð, 2 heldur hefur unun af því að hlýða Drottni og íhuga orð hans dag og nótt, og þannig nálgast hann sífellt meira. 3 Hann líkist tré sem stendur við rennandi læk og ber sætan ávöxt sinn á réttum tíma og blöð þess visna ekki. Slíkum manni tekst allt vel. 4 En hvað með syndarana? Það er önnur saga! Þeir fjúka burt eins og hismi undan vindi. 5 Þeir munu ekki standast á degi dómsins né heldur í söfnuði réttlátra. 6 Drottinn vakir yfir lífi og áformum hinna trúuðu, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.

+ Sálmarnir 1 >