< Matteus 12 >

1 Um þetta leyti gekk Jesús á helgidegi yfir kornakur ásamt lærisveinum sínum. Lærisveinarnir voru svangir, svo að þeir týndu nokkur hveitiöx og átu kornið sem í þeim var. 2 Farísear sem þar voru og sáu til þeirra, sögðu við Jesú: „Sérðu ekki að lærisveinar þínir eru að brjóta lögin? Þetta er bannað að gera á helgidegi!“ 3 En Jesús svaraði þeim: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð konungur gerði þegar hann og menn hans fundu til hungurs? 4 Hann fór inn í guðshús ásamt mönnum sínum og át brauðið sem prestunum einum var heimilt að borða. Það var einnig lagabrot. 5 Hafið þið aldrei lesið í lögum Móse að prestarnir, sem gegna þjónustu í musterinu, verða að vinna störf sín á helgidögum jafnt sem aðra daga. 6 Ég segi: Hér á í hlut sá sem er meiri en musterið. 7 Þið hefðuð ekki dæmt þessa saklausu menn, ef þið skilduð hvað þessi orð þýða: „Miskunnsemi met ég meira en fórn“. 8 Ég, Kristur, er herra hvíldardagsins.“ 9 Jesús lagði nú leið sína til samkomuhússins. 10 Þar var staddur maður með bæklaða hönd. Farísearnir spurðu Jesú: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi?“(Þeir vonuðu auðvitað að hann mundi svara „já“svo að þeir hefðu tilefni til að handtaka hann.) 11 Hann svaraði: „Ef einhver ætti aðeins eina kind og hún félli í skurð á helgidegi, mundi hann þá ekki leggja það á sig að bjarga henni þótt helgidagur væri? Auðvitað! 12 Og er maður ekki meira virði en sauðkind? Þar af leiðir: Það er leyfilegt að vinna góð verk á helgidegi.“ 13 Síðan sagði hann við manninn: „Réttu fram hönd þína.“Maðurinn gerði það og um leið varð hönd hans heil! 14 Farísearnir skutu þegar á fundi og gerðu samsæri um að handtaka Jesú og lífláta hann. 15 Jesús vissi um áform þeirra og yfirgaf því samkomuhúsið, og fóru margir með honum. Hann læknaði alla sem sjúkir voru meðal þeirra, 16 en varaði þá jafnframt við að bera út fréttir um kraftaverk hans. 17 Þar með rættist spádómur Jesaja um hann: 18 „Takið eftir þjóni mínum, sem ég hef útvalið! Ég elska hann og hef yndi af honum. Ég mun gefa honum anda minn og hann mun dæma þjóðirnar. 19 Hann beitir engan ofríki og fer ekki með háreysti. 20 Hann brýtur ekki hið veika strá og ógnar ekki hinu ístöðulitla. Sigur hans mun stöðva allt misrétti og ranglæti 21 og á hann munu þjóðirnar treysta.“ 22 Þá var komið til hans með mann sem var bæði blindur og mállaus og þjáðist af illum anda. Jesús læknaði manninn og hann fékk bæði sjón og mál á ný. 23 Þá hrópaði fólkið: „Getur verið að þessi Jesús sé Kristur?!“ 24 Þegar farísearnir heyrðu um kraftaverkið sögðu þeir: „Hann rekur út illa anda með aðstoð Satans, foringja illu andanna.“ 25 Jesús skynjaði hugsanir þeirra og sagði: „Ríki sem er sundrað hlýtur að leggjast í auðn. Borg eða heimili, þar sem allt logar í ófriði, fær ekki staðist. 26 Ef Satan rekur Satan út, er hann að berjast gegn sjálfum sér og sundra ríki sínu. Ef ég beiti valdi Satans til að reka út illa anda, 27 með hvaða krafti rekur þá ykkar fólk þá út? Svari það ásökun ykkar! 28 En ef ég rek illa anda út með mætti Guðs, þá er ríki hans komið á meðal ykkar. 29 Enginn kemst inn í hús voldugs manns og rænir eigum hans nema binda hann fyrst. Eins er með ríki Satans, sé hann bundinn er hægt að reka illu andana út. 30 Sá sem ekki vinnur með mér vinnur gegn mér. 31 Háð gegn mér er unnt að fyrirgefa og einnig allar aðrar syndir, nema eina: Lastmæli gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið, 32 hvorki í þessum heimi né hinum komandi. (aiōn g165) 33 Tré þekkist af ávexti sínum. Tré af valinni tegund ber góðan ávöxt, en léleg tegund vondan ávöxt. 34 Þið höggormsafkvæmi! Hvernig ættu vondir menn eins og þið að geta talað máli góðsemi og réttlætis? Hugarfar mannsins ákveður orð hans. 35 Góður maður ber vitni um gott innræti með orðum sínum, en vondur maður tjáir illt innræti með tali sínu. 36 Eitt er víst: Á degi dómsins verðið þið að gera grein fyrir hverju ónytjuorði sem þið hafið sagt. 37 Orð þau, sem þið mælið nú, ákveða örlög ykkar þá. Annað hvort munu þau sýkna ykkur eða sakfella.“ 38 Þá svöruðu nokkrir fræðimenn og farísear honum og sögðu: „Sýndu okkur kraftaverk.“Með kraftaverkinu átti Jesús að sanna að hann væri Kristur. 39 Jesús svaraði: „Aðeins vont og vantrúað fólk heimtar slíkar sannanir. Reynsla Jónasar spámanns á að vera ykkur nægileg sönnun. Jónas var þrjá sólarhringa í stórfiskinum, og ég, Kristur, mun sömuleiðis verða þrjá daga í skauti jarðarinnar. 40 41 Á degi dómsins munu íbúar Niníve rísa upp gegn þessari þjóð og dæma hana. Þegar Jónas áminnti þá, iðruðust þeir og sneru sér frá syndum sínum til Guðs. Hér stendur sá sem æðri er Jónasi, en samt viljið þið ekki trúa honum! 42 Drottningin af Saba mun rísa upp í dóminum, tala gegn þessari þjóð og dæma hana seka. Hún kom frá fjarlægu landi til að hlýða á speki Salómons, en hér stendur sá sem er æðri en Salómon, og þið neitið að trúa honum.“ 43 „Þessi þjóð er líkt og haldin illum anda! Þegar illur andi er farinn úr manni, fer hann út í eyðimörkina um stund og leitar hvíldar, en án árangurs og því segir hann: „Ég vil fara aftur í manninn sem ég var í.“Þá fer hann og finnur sjö aðra anda, sér verri. Þeir fara síðan og búa um sig í manninum, og ástand hans verður verra en áður.“ 44 45 46 Meðan Jesús var að tala, kom móðir hans og bræður að útidyrunum og vildu fá að hitta hann (en þau komust ekki inn vegna þrengsla). 47 48 Þegar honum var sagt frá þessu spurði hann: „Hver er móðir mín? Hverjir eru bræður mínir?“ 49 Því næst benti hann á lærisveina sína og sagði: „Sjáið! Þarna er móðir mín og bræður.“ 50 Síðan bætti hann við: „Hver sá sem hlýðir föður mínum á himnum er bróðir minn, systir og móðir.“

< Matteus 12 >