< Matteus 10 >

1 Jesús kallaði nú til sín tólf af lærisveinum sínum, gaf þeim vald til að reka út illa anda og lækna hvers konar sjúkdóma. 2 Nöfn þessara tólf lærisveina eru: Símon (einnig kallaður Pétur), Andrés (bróðir Péturs), Jakob Sebedeusson, Jóhannes (bróðir Jakobs), Filippus, Bartólómeus, Tómas, Matteus (skattheimtumaðurinn), Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon (en hann var meðlimur róttæks stjórnmálaflokks sem kallaðist Selótar) og Júdas Ískaríot (sá sem síðar sveik hann). 3 4 5 Jesús sendi þá af stað og gaf um leið þessi fyrirmæli: „Farið hvorki til heiðingja né Samverja. 6 Farið aðeins til Ísraelsmanna – hinna týndu sauða Guðs þeirra á meðal. 7 Segið þeim að ríki himnanna sé nálægt. 8 Læknið sjúka og holdsveika, vekið upp dauða og rekið út illa anda. Gefið á sama hátt og þið hafið þegið! 9 Takið ekki með ykkur peninga, 10 föt né skó til skiptanna og jafnvel ekki göngustaf. Þeir sem njóta hjálpar ykkar munu annast ykkur. 11 Þegar þið komið inn í bæ eða þorp, reynið þá að finna einhvern sem er opinn fyrir Guði og gistið þar uns þið farið til næsta þorps. 12 Þegar þið beiðist gistingar þá blessið heimilið, sé það guðrækið, en ef ekki, haldið þá blessuninni fyrir sjálfa ykkur. 13 14 Ef eitthvert þorp eða heimili vill ekki taka við ykkur, dustið þá rykið af fótum ykkar um leið og þið farið þaðan. 15 Ég segi ykkur satt: Þeim stað mun verr farnast á dómsdegi en borgunum guðlausu, Sódómu og Gómorru. 16 Ég sendi ykkur sem lömb á meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar en falslausir sem dúfur. 17 Gætið að! Þið munuð verða handteknir, yfirheyrðir og húðstrýktir í samkomuhúsunum. 18 Þið verðið jafnvel að svara til saka frammi fyrir stjórnvöldum mín vegna. Þá fáið þið tækifæri til að segja þeim frá mér – vitna um mig frammi fyrir heiminum. 19 Þegar þið verðið handteknir, hafið þá engar áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja mál ykkar, því ykkur verða gefin rétt orð á réttum tíma. 20 Það verða ekki þið sem talið, heldur mun andi föður ykkar á himnum tala í ykkur! 21 Bróðir mun svíkja bróður sinn í dauðann og feður börn sín. Börn munu einnig rísa gegn foreldrum sínum til að lífláta þá! 22 Allir munu hata ykkur vegna þess að þið tilheyrið mér, en þeir sem standa stöðugir allt til enda munu frelsast. 23 Þegar þið mætið ofsóknum í einhverri borg, skuluð þið flýja til þeirrar næstu. Ég mun koma aftur áður en þið hafið náð til þeirra allra! 24 Nemandi er ekki fremri kennara sínum. Og þjónninn er ekki settur yfir húsbónda sinn. 25 Nemandinn á hlutdeild í kjörum kennara síns og þjónninn húsbónda síns. En hvernig mun fara fyrir ykkur, fyrst ég, húsbóndinn, hef verið kallaður Satan? 26 Óttist ekki þá sem hafa í hótunum við ykkur, því að sannleikurinn mun koma í ljós. 27 Það sem ég segi ykkur í rökkrinu, skuluð þið kalla að morgni og það sem ég hvísla í eyru ykkar, skuluð þið hrópa á húsþökum! 28 Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti. (Geenna g1067) 29 Vitið þið verðið á spörfuglum? Fást ekki tveir fyrir einn smápening? Ekki einn einasti þeirra fellur til jarðar án vitundar föður ykkar. 30 Hann veit meira að segja hve hárin eru mörg á höfði ykkar! 31 Verið því ekki kvíðafullir. Þið eruð dýrmætari í augum Guðs en margir spörfuglar. 32 Hvern þann sem viðurkennir mig sem vin sinn fyrir mönnum mun ég viðurkenna sem vin minn fyrir föður mínum á himnum. 33 En hverjum þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun ég afneita fyrir föður mínum á himnum. 34 Haldið ekki að ég sé hér til að koma á friði á jörðu – nei, þvert á móti. 35 Ég kom til að gera son ósáttan við föður sinn, dóttur ósátta við móður sína og tengdadóttur við tengdamóður sína. 36 Heimilismennirnir verða óvinir húsbónda síns. 37 Ef þið elskið föður ykkar eða móður meira en mig, þá eruð þið ekki verðir þess að tilheyra mér. Sama er að segja ef þið elskið son ykkar eða dóttur meira en mig. 38 Sá sem ekki vill deyja sjálfum sér og fylgja mér er mín ekki verður. 39 Sá sem vill njóta lífsins sjálfs sín vegna, mun glata því, en sá sem fórnar því mín vegna, mun bjarga því. 40 Þeir sem taka við ykkur, taka við mér. Þegar þeir taka við mér, þá taka þeir við Guði sem sendi mig. 41 Ef þið takið á móti spámanni vegna þess að hann er maður Guðs, þá hljótið þið sömu laun og þeir. 42 Ef þið, lærisveinar mínir, gefið smælingja þó ekki sé nema glas af svaladrykk, þá mun ykkur vissulega verða launað fyrir það.“

< Matteus 10 >