< Hebreabréfið 9 >

1 Í fyrri sáttmálanum milli Guðs og Ísraelsmanna voru reglur um tilbeiðslu og þar var einnig rætt um heilagt tjald hér á jörðu.
Now indeed even the first had ordinances of divine service, and an earthly sanctuary.
2 Í þeim helgidómi – tjaldinu – voru tvö herbergi. Í fremra herberginu, sem kallað var hið heilaga, var borð ásamt ljósastjaka úr gulli. Á borðinu voru sérstök brauð, sem notuð voru við helgiathafnir.
For a tabernacle was prepared. In the first part were the lampstand, the table, and the show bread; which is called the Holy Place.
3 Síðan tók við fortjald og innan við það var annað herbergi, sem kallaðist „hið allra helgasta“.
After the second curtain was the tabernacle which is called the Holy of Holies,
4 Þar inni var reykelsisaltari úr gulli og einnig kista sem kölluð var sáttmálsörkin. Var hún lögð skíru gulli bæði að utan og innan. Í kistunni voru steinplötur, sem á voru rituð boðorðin tíu, gullkrukka með dálitlu af manna og stafur Arons, sem hafði blómgast.
having a golden censer, and the ark of the covenant overlaid on all sides with gold, in which was a gold jar containing the manna, Aaron's rod that budded, and the tablets of the covenant;
5 A loki kistunnar voru styttur af englum, svokallaðir kerúbar, sem standa áttu vörð um dýrð Guðs. Þeir þöndu vængi sína yfir hið gullna lok arkarinnar, sem kallaðist náðarstóllinn, en nóg um það.
and above it cherubim of glory overshadowing the mercy seat, of which things we cannot speak now in detail.
6 Þegar tjaldið var fullbúið, sinntu prestarnir störfum sínum í fremra herberginu hvenær sem þeir þurftu,
Now these things having been thus prepared, the cohanim go in continually into the first tabernacle, performing their duties.
7 en aðeins æðsti presturinn fékk að fara inn í innra herbergið. Þangað fór hann aðeins einu sinni á ári, aleinn, og þá með blóð sem hann stökkti á náðarstólinn. Það var fórn til Guðs, til þess að gjalda fyrir eigin syndir og mistök og einnig fyrir syndir alls fólksins.
But into the second the cohan gadol alone, once in the year, not without blood, which he offers for himself, and for the sins of the people committed in ignorance.
8 Þetta bendir heilagur andi á, til að sýna okkur að alþýða manna fékk ekki að ganga inn í hið allra helgasta á dögum gamla sáttmálans, þegar fremra herbergið og það sem þar fór fram, var í fullu gildi.
The Ruach ha-Kodesh is indicating this, that the way into the Holy Place was not yet revealed while the first tabernacle was still standing;
9 Þetta segir okkur, sem nú lifum, býsna merkilega hluti. Meðan gamla lagakerfið var í gildi voru gjafir og fórnir bornar fram, en þær dugðu ekki til að hreinsa hjörtu fólksins.
which is a symbol of the present age, where gifts and sacrifices are offered that are incapable, concerning the conscience, of making the worshipper perfect;
10 Gamla kerfið snerist allt um vissar reglur. Þar voru reglur um hvað ætti að borða og hvað ætti að drekka, reglur um hvernig og hvenær ætti að þvo sér; já, reglur um þetta og reglur um hitt. Fólkið var skyldugt að fara eftir þessum reglum, allt þar til Kristur kom og opnaði nýja og betri leið til hjálpræðis.
but deal only with foods and drinks and various washings; they are regulations for the flesh imposed until the time of setting things right.
11 Kristur kom sem æðsti prestur nýs og betri sáttmála og þann sáttmála höfum við nú. Hann gekk inn í hina miklu og fullkomnu tjaldbúð himnanna, sem hvorki er gerð af manna höndum né úr jarðnesku efni.
But the Messiah having come as a cohen hagadol of the good things that have come, through the greater and more perfect tabernacle, not made with hands, that is to say, not of this creation,
12 Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði. (aiōnios g166)
nor yet through the blood of goats and calves, but through his own blood, entered in once for all into the Holy Place, having obtained everlasting redemption. (aiōnios g166)
13 Fyrst blóð úr nautum og geitum og aska af kvígum gat hreinsað manninn af synd, samkvæmt gamla sáttmálanum,
For if the blood of goats and bulls, and the ashes of a heifer sprinkling those who have been defiled, sanctify to the cleanness of the flesh:
14 þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. (aiōnios g166)
how much more will the blood of Messiah, who through the eternal Ruach offered himself without blemish to God, cleanse our conscience from dead works to serve the living God? (aiōnios g166)
15 Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi. (aiōnios g166)
For this reason he is the mediator of a new covenant, since a death has occurred for the redemption of the transgressions that were under the first covenant, that those who have been called may receive the promise of the everlasting inheritance. (aiōnios g166)
16 Þegar maður deyr og skilur eftir sig erfðaskrá, þá fær enginn neitt af arfinum fyrr en sannast hefur að sá, er gerði erfðaskrána, sé dáinn.
Now where there is a will, the death of the one who made it must be proven.
17 Erfðaskráin gengur ekki í gildi fyrr en sá er látinn, sem hana gerði, og meðan hann er á lífi, getur enginn notfært sér hana til að komast yfir þær eignir sem honum eru ánafnaðar.
For a will is in force where there has been death, for it is never in force while the one who made it lives.
18 Þetta skýrir hvers vegna blóði fórnardýranna var úthellt (en það bendir einmitt fram til dauða Krists) og það meira að segja áður en fyrri sáttmálinn tók gildi.
Therefore even the first has not been dedicated without blood.
19 Eftir að Móse hafði afhent fólkinu lögbók Guðs, tók hann blóð kálfa og geita ásamt vatni og stökkti því með ísópsgrein og skarlatsrauðri ull yfir sjálfa bókina og allt fólkið.
For when every commandment had been spoken by Moses to all the people according to the Law, he took the blood of the calves and the goats, with water and scarlet wool and hyssop, and sprinkled both the scroll itself and all the people,
20 Síðan sagði hann: „Blóð þetta er tákn þess að sáttmálinn milli ykkar og Guðs hefur tekið gildi, en þennan sáttmála bauð Guð mér að gera milli ykkar og sín.“
saying, "This is the blood of the covenant which God has commanded you."
21 Síðan stökkti hann á sama hátt blóði á hið heilaga tjald og á öll áhöldin sem notuð voru til helgihaldsins.
Moreover he sprinkled the tabernacle and all the vessels of the ministry in like manner with the blood.
22 Það má með sanni segja, að nálega allt sem tilheyrði gamla sáttmálanum, hafi verið helgað með því að stökkva á það blóði, því að ekki fæst fyrirgefning án úthellingar blóðs.
According to the Law, nearly everything is cleansed with blood, and apart from shedding of blood there is no forgiveness.
23 Hjá því varð ekki komist að Móse yrði þannig að hreinsa þetta heilaga, en jafnframt jarðneska tjald og allt sem í því var – allt gert eftir himneskri fyrirmynd – með því að stökkva á það dýrablóði. Himnesk fyrirmynd þessa tjalds var einnig hreinsuð og helguð, en þó með miklu dýrlegri fórn.
It was necessary therefore that the copies of the things in the heavens should be cleansed with these; but the heavenly things themselves with better sacrifices than these.
24 Kristur gekk inn í sjálfan himininn til að koma fram fyrir Guð sem talsmaður okkar. Það gerðist ekki í jarðneska helgidómnum, því að hann var aðeins eftirmynd hins himneska.
For Messiah hasn't entered into holy places made with hands, which are representations of the true, but into heaven itself, now to appear in the presence of God for us;
25 Og ekki fórnfærði Kristur sjálfum sér, hvað eftir annað, eins og jarðneskur æðsti prestur, sem ber árlega fram dýrablóð að fórn í hinu allra helgasta.
nor yet that he should offer himself often, as the cohen hagadol enters into the holy place year by year with blood not his own,
26 Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis, allt frá því heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur. (aiōn g165)
or else he must have suffered often since the foundation of the world. But now once at the end of the ages, he has been revealed to put away sin by the sacrifice of himself. (aiōn g165)
27 Eins og það liggur fyrir manninum að deyja einu sinni og koma síðan fyrir dóminn,
Inasmuch as it is appointed for people to die once, and after this, judgment,
28 þannig dó Kristur líka einu sinni sem fórn fyrir syndir margra. Eftir það mun hann koma á ný, ekki til að deyja fyrir syndir, heldur til að flytja þeim hjálpræði sitt, sem hans bíða.
so Messiah also, having been offered once to bear the sins of many, will appear a second time, without sin, to those who are eagerly waiting for him for salvation.

< Hebreabréfið 9 >