< Postulasagan 12 >

1 Um þetta leyti tók Heródes konungur að ofsækja söfnuðinn í Jerúsalem 2 og lét hann taka Jakob postula (bróður Jóhannesar) af lífi. 3 Þegar Heródes sá að leiðtogum Gyðinga líkaði þetta vel, lét hann handtaka Pétur, meðan á páskahátíðinni stóð, 4 og varpa honum í fangelsi. Þar var Péturs gætt af sextán hermönnum. Ætlun Heródesar var að koma Pétri í hendur Gyðingunum og láta taka hann af lífi þegar páskarnir væru liðnir. 5 Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum. 6 Kvöldið áður en aftakan átti að fara fram svaf Pétur þar sem hann lá hlekkjaður milli tveggja hermanna. Aðrir verðir voru úti fyrir fangelsisdyrunum. 7 Skyndilega birti í klefanum. Engill frá Drottni var kominn og stóð hjá Pétri. Engillinn ýtti við honum, vakti hann og sagði: „Fljótur! Á fætur með þig!“Þá féllu handjárnin af Pétri. 8 „Klæddu þig, farðu í skóna og yfirhöfnina og eltu mig!“sagði hann. Pétur hlýddi. 9 Pétur yfirgaf klefann og fylgdi englinum. Hann hélt að annað hvort væri þetta draumur eða vitrun – hann trúði ekki að þetta væri raunveruleiki. 10 Þeir gengu nú fram hjá fyrstu og síðan annarri varðsveit fangelsisins og komu að járnhliðinu við götuna, sem opnaðist af sjálfu sér! Þeir gengu út á götuna og fram með húsaröðinni, en þá hvarf engillinn. 11 Skyndilega áttaði Pétur sig á hvað gerst hafði. „Þetta er þá raunveruleiki!“sagði hann við sjálfan sig. „Drottinn hefur sent engil og bjargað mér úr höndum Heródesar og frá áformum Gyðinganna.“ 12 Eftir stutta umhugsun ákvað hann að fara heim til Maríu, móður Jóhannesar Markúsar, en þar voru margir samankomnir til að biðja, 13 Hann barði að dyrum og fór þá stúlka, Róde að nafni, fram til að opna. 14 Þegar hún heyrði að þetta var Pétur varð hún afar glöð og hljóp aftur inn til að segja öllum að Pétur stæði fyrir utan. 15 En þau trúðu henni ekki og sögðu: „Þú ert ekki með öllum mjalla!“En hún sat föst við sinn keip. Þá sagði einhver: „Þetta hlýtur þá að vera engill hans.“ 16 Meðan á þessum samræðum stóð hélt Pétur áfram að berja og þegar þau fóru fram og opnuðu, urðu þau orðlaus af undrun. 17 Hann gaf þeim merki um að hafa ekki hátt og sagði frá hvað gerst hafði, hvernig Drottinn hefði leyst hann úr fangelsinu og bætti svo við: „Segið Jakobi og hinum frá þessu.“Því næst fór hann burt á öruggari stað. 18 Þegar birti komst allt í uppnám í fangelsinu. Hvað var orðið af Pétri? 19 Heródes hafði sent menn til að sækja hann, en þegar hann fannst ekki lét hann handtaka verðina sextán, dró þá fyrir rétt og lét lífláta þá. Eftir það fór hann til Sesareu og dvaldist þar um hríð. 20 Meðan Heródes var í Sesareu kom þangað sendinefnd frá Týrus og Sídon til fundar við hann. Honum var meinilla við íbúa þessara borga og því komu þeir sér í mjúkinn hjá Blastusi, ritara hans, og fóru fram á friðsamleg samskipti, því að borgir þeirra áttu mikið undir verslun við land Heródesar. 21 Sendinefndin fékk loforð um fund með Heródesi og þegar stundin nálgaðist, klæddist hann konungsskrúða sínum, settist í hásætið og ávarpaði þá. 22 Að ræðunni lokinni hrópaði fólkið af fögnuði: „Þetta var ekki rödd manns – heldur Guðs!“ 23 Samstundis lagði engill frá Drottni sjúkdóm á Heródes, svo hann fylltist af ormum og lést. Ástæðan var sú að hann leyfði fólkinu að tilbiðja sig, en gaf Guði ekki dýrðina. 24 Fagnaðarerindi Guðs breiddist nú hratt út og margir snerust til trúar. 25 Strax og Barnabas og Páll höfðu lokið erindi sínu í Jerúsalem, sneru þeir aftur til Antíokkíu og tóku Jóhannes Markús með sér þangað.

< Postulasagan 12 >