< 1 Korintubréf 10 >

1 Gleymum aldrei, vinir mínir, því sem kom fyrir þjóð okkar í eyðimörkinni forðum. Guð vísaði þeim veginn með skýi sem fór á undan þeim, og leiddi þá heilu og höldnu yfir Rauðahafið. 2 Þetta mætti kalla skírn þeirra til fylgdar við Móse – því þeir voru skírðir bæði í hafinu og skýinu. 3 Og á yfirnáttúrlegan hátt sendi Guð þeim fæðu að eta og vatn að drekka þarna í miðri eyðimörkinni – þeir drukku vatnið sem Kristur gaf þeim. Hann var þar hjá þeim eins og klettur og veitti andlega svölun og endurnæringu. 4 5 En þrátt fyrir allt þetta, þá óhlýðnuðust flestir þeirra Guði og hann lét þá falla í eyðimörkinni. 6 Af þessu sjáum við að við eigum ekki að girnast það sem illt er, eins og þeir gerðu, 7 né tilbiðja hjáguði, eins og þeir. Biblían segir: Fólkið settist niður til að eta og drekka og stóð upp til að dansa – kring um gullkálfinn. 8 Önnur aðvörun felst í því sem gerðist þegar sumir þeirra drýgðu hór. Afleiðing þess var að 23.000 þeirra dóu á einum degi! 9 Misbjóðið ekki heldur þolinmæði Drottins, það gerðu þeir og dóu því af höggormsbitum. 10 Kvartið ekki gegn Guði og verkum hans, eins og þeir gerðu, munið að Guð sendi engil sinn til að eyða þeim. 11 Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess að við gætum lesið um þá og lært af þeim nú er endalok heimsins nálgast. (aiōn g165) 12 Gætið því að ykkur. Hugsið ekki sem svo: Þannig mundi ég aldrei hegða mér, þetta kemur aldrei fyrir mig! Látið þetta ykkur að kenningu verða, því þið gætuð líka gert rangt. 13 En munið þetta: Þær girndir sem þið þurfið að takast á við í lífi ykkar, eru ekkert nýtt eða einstakt. Margir hafa áður orðið að kljást við sömu vandamál og þið. En engin freisting er óyfirstíganleg. Þið getið treyst því að Guð muni ekki leyfa freistingunni að sigra ykkur. Þessu hefur hann lofað og hann stendur við orð sín. Hann mun sýna ykkur leið til að komast undan freistingunni, til þess að þið getið staðist hana ef þið viljið. 14 Gætið þess, vinir mínir umfram allt, að forðast hvers konar hjáguðadýrkun. 15 Þið eruð skynsemdarfólk. Dæmið því um það sem ég ætla nú að segja: 16 Þegar við biðjum um blessun Guðs yfir bikarinn, sem við drekkum af við heilaga kvöldmáltíð, þýðir það þá ekki að allir, sem drekka af honum, njóti saman blessunar af blóði Krists? Og þegar við brjótum brauðið og neytum þess saman, þá sýnir það að við njótum öll sameiginlega gjafa líkama hans. 17 Ekki skiptir máli hve mörg við erum, við neytum öll af sama brauði og sýnum þar með að við erum öll limir á líkama Krists. 18 Eins er með Gyðingana, allir sem borða fórnarkjötið eru sameinaðir, bæði innbyrðis og í Guði, í þeirri athöfn. 19 Hvað er ég að reyna að segja? Er ég að segja að skurðgoðin, sem heiðingjarnir færa fórnir, séu lifandi og raunverulegir guðir og að kjöt, þeim fórnað, verði fyrir illum áhrifum? Nei, alls ekki. 20 Ég á við að þeir, sem fórna til þessara skurðgoða, eru sameinaðir í því að fórna til illra anda en alls ekki Guðs og ég vil ekki að neitt ykkar eigi samfélag við illa anda. 21 Þið getið ekki drukkið af bikar Drottins og einnig af bikar Satans. Þið getið ekki meðtekið brauð við máltíð Drottins og einnig við borð illra anda. 22 Eigum við að reita Drottin til reiði? Erum við öflugri en hann? 23 Auðvitað megið þið borða mat sem fórnað hefur verið skurðgoðum, ef þið viljið. Neysla slíks kjöt er ekki brot á lögum Guðs, en það þýðir þó ekki að þið eigið að gera það. Það getur verið leyfilegt en kann þó að vera óráðlegt. 24 Hugsið ekki aðeins um ykkur sjálf. Reynið líka að hugsa um meðbróður ykkar og systur og hvað þeim sé fyrir bestu. 25 Farið þannig að: Kaupið það kjöt sem selt er á torginu. Spyrjið ekki hvort það sé fórnarkjöt. 26 Jörðin og öll hennar gæði tilheyra Guði og eru ykkur til gagns og gleði. 27 Ef einhver, sem ekki er kristinn, býður þér í kvöldmat, þá skaltu hiklaust þiggja boðið ef þú vilt. Borðaðu allt sem fyrir þig er sett og spurðu einskis. Þá veistu ekki hvort maturinn hefur verið notaður til fórna eða ekki, og átt því ekki á hættu að fá samviskubit. 28 En ef einhver aðvarar þig og segir að þetta sé fórnarkjöt, skaltu ekki borða það, af tillitssemi við þann sem varaði þig við og samvisku hans. 29 Í þessu tilviki er það hans afstaða sem máli skiptir en ekki þín. Nú finnst þér ef til vill undarlegt hvers vegna þér ber að láta skoðanir annarra hafa áhrif á og stjórna gerðum þínum. 30 Geti ég þakkað Guði fyrir matinn og notið hans, hvers vegna á ég þá að láta einhvern annan eyðileggja allt, bara af því að honum finnst ég hafa rangt fyrir mér? 31 Jú, sjáið til. Það er vegna þess að allt sem þið gerið á að vera Drottni til dýrðar, jafnvel matur ykkar og drykkur. 32 Verið því ekki öðrum til hneykslunar, hvort sem það eru Gyðingar, heiðingjar eða trúbræður. 33 Þannig fer ég að: Ég reyni að þóknast öllum í öllu sem ég geri, og hugsa þá ekki aðeins um það sem mér fellur best eða gagnast mest, heldur um það sem getur orðið þeim fyrir bestu, svo að þeim verði bjargað – þeir frelsist.

< 1 Korintubréf 10 >