< ՅԱՅՏՆՈՒԹԻՒՆ ՅՈՎՀԱՆՆՈՒ 13 >

1 Տեսայ թէ գազան մը կը բարձրանար ծովէն. ան ունէր եօթը գլուխ ու տասը եղջիւր: Անոր եղջիւրներուն վրայ տասը թագ կար, եւ անոր գլուխներուն վրայ՝ հայհոյութեան անուններ:
Og drekinn nam staðar á ströndinni. Í sýn minni sá ég nú einkennilegt dýr, sem reis upp úr hafinu. Það hafði sjö höfuð og tíu horn og á hornunum voru tíu kórónur. Á hvert höfuð um sig voru skráð guðlöstunar nöfn. Nöfn þessi áttu að ögra Guði og smána hann.
2 Այդ գազանը նման էր ընձառիւծի. անոր ոտքերը՝ արջի ոտքերու պէս էին, եւ անոր երախը՝ առիւծի երախի պէս: Վիշապը տուաւ անոր իր զօրութիւնը, իր գահն ու մեծ իշխանութիւն:
Dýrið líktist hlébarða, en samt hafði það bjarnarfætur og ljónsgin. Drekinn gaf dýrinu mátt sinn, hásæti og mikið vald.
3 Անոր գլուխներէն մէկը մորթուածի պէս էր. բայց անոր մահացու վէրքը բուժուեցաւ, եւ ամբողջ երկիրը սքանչանալով գազանին հետեւեցաւ՝՝:
Ég sá að eitt höfuð dýrsins virtist helsært – en svo varð það alheilt! Allur heimurinn varð gagntekinn undrun og fylgdi dýrinu með óttablandinni lotningu.
4 Անոնք երկրպագեցին վիշապին՝ որ իշխանութիւն տուաւ գազանին, ու երկրպագեցին գազանին՝ ըսելով. «Ո՞վ նման է գազանին. ո՞վ կրնայ պատերազմիլ անոր հետ»:
Fólkið tilbað drekann fyrir að gefa dýrinu slíkt vald og það tilbað einnig þetta einkennilega dýr. „Hver getur jafnast á við það eða barist við það?“hrópuðu menn.
5 Անոր տրուեցաւ բերան մը՝ մեծ բաներ եւ հայհոյութիւններ խօսող, ու իշխանութիւն տրուեցաւ անոր՝ ընելու իր կամքը քառասուներկու ամիս:
Þá hvatti drekinn dýrið til að lastmæla Drottni, og hann gaf því vald til starfa á jörðinni í fjörutíu og tvo mánuði.
6 Հայհոյութեամբ բացաւ իր բերանը Աստուծոյ դէմ, եւ հայհոյեց անոր անունին, խորանին ու երկինքը բնակողներուն դէմ:
Allan þann tíma formælti það nafni Guðs, musteri hans og öllum þeim sem á himni búa.
7 Անոր իշխանութիւն տրուեցաւ սուրբերուն հետ պատերազմելու եւ յաղթելու անոնց: Անոր իշխանութիւն տրուեցաւ բոլոր տոհմերուն (եւ ժողովուրդներուն) ու լեզուներուն եւ ազգերուն վրայ:
Drekinn gaf dýrinu vald til að berjast gegn mönnum Guðs og sigra þá, og til að stjórna öllum þjóðum og þjóðarbrotum, hvar sem er á jörðinni.
8 Անոր պիտի երկրպագեն բոլոր անոնք որ կը բնակին երկրի վրայ եւ որոնց անունը աշխարհի հիմնադրութենէն ի վեր գրուած չէ մորթուած Գառնուկին կեանքի գիրքին մէջ՝՝:
Og allir menn tilbáðu dýrið, allir þeir sem ekki höfðu verið skráðir í lífsbók lambsins frá upphafi heimsins – þess lambs sem slátrað var.
9 Ո՛վ որ ականջ ունի, թող լսէ:
Sá sem hefur eyra, hann heyri!
10 Ա՛ն որ գերեվարէ, ի՛նք գերի պիտի տարուի. ա՛ն որ սուրով սպաննէ, պէտք է որ սուրո՛վ սպաննուի: Հո՛ս է սուրբերուն համբերութիւնն ու հաւատքը:
Sá, sem ætlað er að fara í útlegð, mun fara í útlegð og sá, sem ætlað er að falla fyrir sverði, verður felldur með sverði. Í þessu reynir á trú og þolgæði hinna kristnu.
11 Տեսայ նաեւ ուրիշ գազան մը, որ կը բարձրանար երկրէն. ունէր երկու եղջիւր՝ գառնուկի նման, եւ կը խօսէր վիշապի պէս:
Nú sá ég annað undarlegt dýr, það kom upp úr jörðinni. Á höfði þess voru tvö lítil horn, eins og lambshorn, en rödd þess var ógnþrungin líkt og rödd drekans.
12 Կը վարէր առաջին գազանին ամբողջ իշխանութիւնը՝ անոր առջեւ, ու կը ստիպէր երկիրը եւ անոր բնակիչները՝ որ երկրպագեն առաջին գազանին, որուն մահացու վէրքը բուժուած էր:
Dýr þetta fer með allt vald fyrra dýrsins, sem læknaðist, og fær allan heiminn til að tilbiðja það.
13 Մեծ նշաններ կ՚ընէր, եւ մինչեւ անգամ երկինքէն կրակ կ՚իջեցնէր երկրի վրայ՝ մարդոց առջեւ:
Það vinnur ótrúleg kraftaverk. Það lætur til dæmis eld falla til jarðar af himni í augsýn allra.
14 Կը մոլորեցնէր երկրի բնակիչները այն նշաններով՝ որ ընելու կարողութիւն տրուած էր իրեն՝ գազանին առջեւ: Կ՚ըսէր երկրի բնակիչներուն որ շինեն պատկերը այն գազանին՝ որ սուրով վիրաւորուած էր բայց ապրեցաւ:
Með þessum kraftaverkum leiðir það íbúa heimsins í villu. Þegar fyrra dýrið er nálægt til að fylgjast með, getur hitt gert öll þessi furðuverk. Nú skipaði dýrið íbúum heimsins að búa til stóra styttu af fyrra dýrinu – því sem verið hafði sært, en læknast.
15 Եւ կարողութիւն տրուեցաւ իրեն՝ որ հոգի տայ գազանին պատկերին, որպէսզի գազանին պատկերը խօսի, նաեւ մեռցնել տայ բոլոր անոնք՝ որ չեն երկրպագեր գազանին պատկերին:
Þegar því verki var lokið var dýrinu leyft að blása lífi í styttuna og láta hana tala. Styttan skipaði svo fyrir að hver sá, sem neitaði að tilbiðja hana, skyldi deyja!
16 Կը ստիպէր բոլո՛րն ալ, պզտիկ թէ մեծ, հարուստ թէ աղքատ, ազատ թէ ստրուկ, որ դրոշմ ընդունին իրենց աջ ձեռքին վրայ կամ իրենց ճակատին վրայ,
Styttan krafðist þess að allir, bæði stórir og smáir, ríkir og fátækir, ánauðugir og frjálsir, skyldu auðkenndir sérstöku merki á hægri hönd eða enni.
17 որպէսզի ո՛չ մէկը կարենայ գնել կամ ծախել, բայց միայն ա՛ն՝ որ ունի դրոշմը, կամ գազանին անունը, կամ անոր անունին թիւը:
Sá sem ekki hafði þetta merki – sem var einkennisstafur eða nafn dýrsins – fékk enga vinnu og jafnvel ekki að versla í neinni búð.
18 Հո՛ս է իմաստութիւնը. ո՛վ որ միտք ունի, թող հաշուէ գազանին թիւը, քանի որ մարդու մը թիւն է, եւ անոր թիւը՝ վեց հարիւր վաթսունվեց է:
Þetta er erfitt að skilja, en þeir sem geta, reikni einkennisstafi dýrsins: Tala þess er 666.

< ՅԱՅՏՆՈՒԹԻՒՆ ՅՈՎՀԱՆՆՈՒ 13 >