< أعمال 6 >

وَفِي تِلْكَ ٱلْأَيَّامِ إِذْ تَكَاثَرَ ٱلتَّلَامِيذُ، حَدَثَ تَذَمُّرٌ مِنَ ٱلْيُونَانِيِّينَ عَلَى ٱلْعِبْرَانِيِّينَ أَنَّ أَرَامِلَهُمْ كُنَّ يُغْفَلُ عَنْهُنَّ فِي ٱلْخِدْمَةِ ٱلْيَوْمِيَّةِ. ١ 1
Á þessum tíma, þegar kirkjan óx hröðum skrefum, kom upp óánægja hjá grískumælandi Gyðingum í söfnuðinum út af því að ekkjur þeirra fengju ekki sinn hlut við hina daglegu matarúthlutun.
فَدَعَا ٱلِٱثْنَا عَشَرَ جُمْهُورَ ٱلتَّلَامِيذِ وَقَالُوا: «لَا يُرْضِي أَنْ نَتْرُكَ نَحْنُ كَلِمَةَ ٱللهِ وَنَخْدِمَ مَوَائِدَ. ٢ 2
Postularnir tólf kölluðu því allan söfnuðinn saman og sögðu: „Okkur postulunum er ætlað að predika, en ekki að stjórna matarúthlutun.
فَٱنْتَخِبُوا أَيُّهَا ٱلْإِخْوَةُ سَبْعَةَ رِجَالٍ مِنْكُمْ، مَشْهُودًا لَهُمْ وَمَمْلُوِّينَ مِنَ ٱلرُّوحِ ٱلْقُدُسِ وَحِكْمَةٍ، فَنُقِيمَهُمْ عَلَى هَذِهِ ٱلْحَاجَةِ. ٣ 3
Lítið því í kringum ykkur, kæru vinir, og finnið sjö vel kynnta menn í ykkar hópi, fulla af vísdómi og heilögum anda. Þá munum við láta annast þessi störf.
وَأَمَّا نَحْنُ فَنُواظِبُ عَلَى ٱلصَّلَاةِ وَخِدْمَةِ ٱلْكَلِمَةِ». ٤ 4
Við tólf getum þá notað tíma okkar til að biðja, predika og kenna.“
فَحَسُنَ هَذَا ٱلْقَوْلُ أَمَامَ كُلِّ ٱلْجُمْهُورِ، فَٱخْتَارُوا ٱسْتِفَانُوسَ، رَجُلًا مَمْلُوًّا مِنَ ٱلْإِيمَانِ وَٱلرُّوحِ ٱلْقُدُسِ، وَفِيلُبُّسَ وَبُرُوخُورُسَ وَنِيكَانُورَ وَتِيمُونَ وَبَرْمِينَاسَ وَنِيقُولَاوُسَ دَخِيلًا أَنْطَاكِيًّا. ٥ 5
Þetta líkaði öllum vel og síðan voru eftirtaldir menn valdir: Stefán (maður óvenju sterkur í trúnni og fylltur heilögum anda), Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu (hann hafði verið heiðingi, en snúist til Gyðingatrúar og síðan orðið kristinn).
الَّذِينَ أَقَامُوهُمْ أَمَامَ ٱلرُّسُلِ، فَصَلُّوا وَوَضَعُوا عَلَيْهِمِ ٱلْأَيَادِيَ. ٦ 6
Þessir sjö voru leiddir fyrir postulana, sem lögðu hendur yfir þá, báðu fyrir þeim og blessuðu þá.
وَكَانَتْ كَلِمَةُ ٱللهِ تَنْمُو، وَعَدَدُ ٱلتَّلَامِيذِ يَتَكَاثَرُ جِدًّا فِي أُورُشَلِيمَ، وَجُمْهُورٌ كَثِيرٌ مِنَ ٱلْكَهَنَةِ يُطِيعُونَ ٱلْإِيمَانَ. ٧ 7
Fagnaðarerindið barst nú stöðugt víðar. Lærisveinunum fjölgaði mjög í Jerúsalem og margir Gyðingaprestar snerust til trúar.
وَأَمَّا ٱسْتِفَانُوسُ فَإِذْ كَانَ مَمْلُوًّا إِيمَانًا وَقُوَّةً، كَانَ يَصْنَعُ عَجَائِبَ وَآيَاتٍ عَظِيمَةً فِي ٱلشَّعْبِ. ٨ 8
Stefán, sem var trúarsterkur og fylltur krafti heilags anda, vann mikil kraftaverk meðal fólksins.
فَنَهَضَ قَوْمٌ مِنَ ٱلْمَجْمَعِ ٱلَّذِي يُقَالُ لَهُ مَجْمَعُ ٱللِّيبَرْتِينِيِّينَ وَٱلْقَيْرَوَانِيِّينَ وَٱلْإِسْكَنْدَرِيِّينَ، وَمِنَ ٱلَّذِينَ مِنْ كِيلِيكِيَّا وَأَسِيَّا، يُحَاوِرُونَ ٱسْتِفَانُوسَ. ٩ 9
Dag nokkurn tóku menn úr trúflokki meðal Gyðinga, sem kallast „Frelsingjarnir“, að þrátta við hann. Fljótlega fengu þeir í lið með sér aðra Gyðinga frá Kýrene, Alexandríu í Egyptalandi, Kilikíu og Asíu,
وَلَمْ يَقْدِرُوا أَنْ يُقَاوِمُوا ٱلْحِكْمَةَ وَٱلرُّوحَ ٱلَّذِي كَانَ يَتَكَلَّمُ بِهِ. ١٠ 10
en enginn þeirra gat þó staðið gegn anda og vísdómi Stefáns.
حِينَئِذٍ دَسُّوا لِرِجَالٍ يَقُولُونَ: «إِنَّنَا سَمِعْنَاهُ يَتَكَلَّمُ بِكَلَامِ تَجْدِيفٍ عَلَى مُوسَى وَعَلَى ٱللهِ». ١١ 11
Þeir fengu því menn til að bera út þann óhróður, að þeir hefðu heyrt Stefán bölva Móse og jafnvel sjálfum Guði.
وَهَيَّجُوا ٱلشَّعْبَ وَٱلشُّيُوخَ وَٱلْكَتَبَةَ، فَقَامُوا وَخَطَفُوهُ وَأَتَوْا بِهِ إِلَى ٱلْمَجْمَعِ، ١٢ 12
Ásakanir þessar æstu múginn upp gegn Stefáni, svo að leiðtogar Gyðinganna handtóku hann og leiddu fyrir ráðið.
وَأَقَامُوا شُهُودًا كَذَبَةً يَقُولُونَ: «هَذَا ٱلرَّجُلُ لَا يَفْتُرُ عَنْ أَنْ يَتَكَلَّمَ كَلَامًا تَجْدِيفًا ضِدَّ هَذَا ٱلْمَوْضِعِ ٱلْمُقَدَّسِ وَٱلنَّامُوسِ، ١٣ 13
Ljúgvitnin endurtóku þar að Stefán væri sífellt að fordæma musterið og lög Móse.
لِأَنَّنَا سَمِعْنَاهُ يَقُولُ: إِنَّ يَسُوعَ ٱلنَّاصِرِيَّ هَذَا سَيَنْقُضُ هَذَا ٱلْمَوْضِعَ، وَيُغَيِّرُ ٱلْعَوَائِدَ ٱلَّتِي سَلَّمَنَا إِيَّاهَا مُوسَى». ١٤ 14
Þeir sögðu: „Við höfum heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret, muni leggja musterið í rúst og fótum troða lög Móse.“
فَشَخَصَ إِلَيْهِ جَمِيعُ ٱلْجَالِسِينَ فِي ٱلْمَجْمَعِ، وَرَأَوْا وَجْهَهُ كَأَنَّهُ وَجْهُ مَلَاكٍ. ١٥ 15
Þegar hér var komið veittu meðlimir ráðsins því athygli að andlit Stefáns lýsti sem engilsásjóna!

< أعمال 6 >